þriðjudagur, maí 15, 2007

PEREAT!

Vá, maður það er einn mánuður í útskrift hjá karlinum mínum og hann byrjar í nýrri vinnu á morgun, og ég er ekkert smá stolt af honum núna.
Enn guð minn góður það er ein og hálfur í stóra daginn, ég er að fara yfir um. Það líður allt svo hratt núna. Hver stendur fyrir þessu? Ég, mamma og Þórey förum bráðum að skoða kjóla handa okkur, svo við verðum fínar og sætar. Við tökum svo Símon með og skoðum kökur.
En á öðrum nótum þá var geðveikt gaman á laugardaginn var, það átti að vera euróvisjonpartý/afmælispartý en við horfðum voða lítið á þetta. Í staðinn var mikið glens og gaman hjá okkur við hlógum svo mikið allt kvöldið að ég átti von á að vera með harðsperur á sunnudeginum en svo var ekki. Við fórum svo í kosningapartý til Þóreyjar sem var mjög fínt við fórum að bulla eins og okkur einum er lagið.
Ég verð því að þakka gestgjöfunu æðislega vel fyrir frábærar veislur svo Linda og Axel og Þórey og Jói ég þakka mjög vel fyrir mig.

Svo vil ég senda kveðju til hennar Sessu minnar sem er að fara vinna á norrænu í sumar og byrjar hún í dag. Gangi þér vel í sumar Sessí mín ekki fara þér að voða. Kiss kiss.

The way to fight a woman is with your hat. Grab it and run! -John Barrymore.

Engin ummæli: