fimmtudagur, maí 17, 2007

Ristilhreinsun

miðvikudagur, maí 16, 2007

þriðjudagur, maí 15, 2007

PEREAT!

Vá, maður það er einn mánuður í útskrift hjá karlinum mínum og hann byrjar í nýrri vinnu á morgun, og ég er ekkert smá stolt af honum núna.
Enn guð minn góður það er ein og hálfur í stóra daginn, ég er að fara yfir um. Það líður allt svo hratt núna. Hver stendur fyrir þessu? Ég, mamma og Þórey förum bráðum að skoða kjóla handa okkur, svo við verðum fínar og sætar. Við tökum svo Símon með og skoðum kökur.
En á öðrum nótum þá var geðveikt gaman á laugardaginn var, það átti að vera euróvisjonpartý/afmælispartý en við horfðum voða lítið á þetta. Í staðinn var mikið glens og gaman hjá okkur við hlógum svo mikið allt kvöldið að ég átti von á að vera með harðsperur á sunnudeginum en svo var ekki. Við fórum svo í kosningapartý til Þóreyjar sem var mjög fínt við fórum að bulla eins og okkur einum er lagið.
Ég verð því að þakka gestgjöfunu æðislega vel fyrir frábærar veislur svo Linda og Axel og Þórey og Jói ég þakka mjög vel fyrir mig.

Svo vil ég senda kveðju til hennar Sessu minnar sem er að fara vinna á norrænu í sumar og byrjar hún í dag. Gangi þér vel í sumar Sessí mín ekki fara þér að voða. Kiss kiss.

The way to fight a woman is with your hat. Grab it and run! -John Barrymore.

fimmtudagur, maí 10, 2007

Búin í prófum nú byrjar geðveikin


ÉEEEEEEGGGGGG Er BÚin í prófum, nannabúbú.
Nú get ég sest niður og borað í nefið yfir euróvison í kveld. Þarf ekki að hugsa neitt fram að hausti, þannig ef ég er eitthvað tóm næst þegar þið hittið mig þá er það ástæðan.
Símon mega babe er búin að skila Ba-ritgerðinni. Æi, ég var að muna að ég get ekki hægt að hugsa strax ég verð að undir búa brúðkaup og vera í hvítum kjóll og svo eiga þessar vinkonur mínar eftir að gera eitthvað miður skemmtilegt við mig, og þá verð ég að drepa þær og þá þarf ég að undir búa jarðarför. Það er svo erfitt að vera ég, hver býður sig fram sem Vanía tvö? Hvað er þetta engin?
Jæja, ég er farin að fella mig undir sofa.
Ef einhver er að leita að mér er ég ekki heima!!!!

"A true friend stabs you in the front."

-Oscar Wilde