þriðjudagur, október 03, 2006

Karlar og konur hver ræður?

Í dag heyrði um hjón sem eru búin að vera gift í 20 ár. Frábært, voru mín fyrstu viðbrögð en svo fékk ég að heyra að karlinn var sjómaður í 17 ár. Konan réði þá yfir heimilinu, ól upp börnin (25 ára son og 14 ára dóttur), borgaði skuldirnar, og hafði sínar reglur. En þegar bóndinn hætti á sjó, var fjandinn laus, karlinn vildi bæta upp fyrir árin sem hann hafði misst og fór að dekra við soninn. Reglur konunar fóru út um gluggann. Stráksi var farin að segja mömmu að þegja, því pabbi ræður! Konan er á mörkum þess að henda karli aftur á sjó og stráksa út á götuna.
Er þetta ekki falleg saga.
Hvað mundu þið gera ef þið væru konan?
Og hvað mundu þið gera ef þið væruð karlinn?
Ég veit reyndar að ef þessi strákur væri minn sonur væri hann ekki meðal vor. Hvað karlinn varðar þá yrði ég að leggja línurnar og benda honum á að hann á litla stelpu sem þarf líka athygli. Og að ég vildi nú smá virðingu; ef ég fengi hana ekki mætti hann láta sig endanlega hverfa.
"Ég var 1
7 ár ein ég get vel verið næstu 17 ein líka."

Jæja,
elskum friðinn, ekki kviðinn
.

Engin ummæli: