miðvikudagur, júní 13, 2007

AAAAAAAAAAAAHHHHHHHHAÞAÐ ERU 28 DAGAR Í BRÚÐKAUPIÐ OG ÉG ER AÐ FARA YFIR UM!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


aaaaaaaaaaaahhhhhhhÞAÐ INNAN VIÐ MÁNUÐUR Í BRÚÐKAUPIÐ, INNAN VIÐ TVEIR Í BÖRNIN,ÚTSKRIFTINN NÆSTU HELGI OG ÉG ER AÐ FARA YFIR UM!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ok slaka á, anda að, anda frá !!!!!!!!!!!
Jæja, hvað er að gerast!!
Simon hinn mikli er að útskrifast um helgina með BA-Próf í sagn-og bókmenntafræði þakka þér fyrir, ekkert smá duglegur strák skrattinn. Þannig haldið verður smá köku og grill partý um helgina,fyrir fjölskyldu og vini.

Hvað er meira að gerast?
Já, Mæja mín fer að eiga eftir svona tæpa tvo mánuði og er hún orðin ekkert smá myndarleg stelpan mín. Svo er allt að fara skella á fyrir Huldu og Eyva ekkert smá flott.
Það eru allir að verða svo fullorðin að það er óhugnanlegt.
Ég vil vera baby aðeins lengur, ég meina það myndi einhver vilja móður sem er en á gelgjunni, ég bara spyr?
,,Sumir kenna áhyggjum sínum að synda í stað þess að drekkja þeim." -Mark Twain

fimmtudagur, maí 17, 2007

Ristilhreinsun

miðvikudagur, maí 16, 2007

þriðjudagur, maí 15, 2007

PEREAT!

Vá, maður það er einn mánuður í útskrift hjá karlinum mínum og hann byrjar í nýrri vinnu á morgun, og ég er ekkert smá stolt af honum núna.
Enn guð minn góður það er ein og hálfur í stóra daginn, ég er að fara yfir um. Það líður allt svo hratt núna. Hver stendur fyrir þessu? Ég, mamma og Þórey förum bráðum að skoða kjóla handa okkur, svo við verðum fínar og sætar. Við tökum svo Símon með og skoðum kökur.
En á öðrum nótum þá var geðveikt gaman á laugardaginn var, það átti að vera euróvisjonpartý/afmælispartý en við horfðum voða lítið á þetta. Í staðinn var mikið glens og gaman hjá okkur við hlógum svo mikið allt kvöldið að ég átti von á að vera með harðsperur á sunnudeginum en svo var ekki. Við fórum svo í kosningapartý til Þóreyjar sem var mjög fínt við fórum að bulla eins og okkur einum er lagið.
Ég verð því að þakka gestgjöfunu æðislega vel fyrir frábærar veislur svo Linda og Axel og Þórey og Jói ég þakka mjög vel fyrir mig.

Svo vil ég senda kveðju til hennar Sessu minnar sem er að fara vinna á norrænu í sumar og byrjar hún í dag. Gangi þér vel í sumar Sessí mín ekki fara þér að voða. Kiss kiss.

The way to fight a woman is with your hat. Grab it and run! -John Barrymore.

fimmtudagur, maí 10, 2007

Búin í prófum nú byrjar geðveikin


ÉEEEEEEGGGGGG Er BÚin í prófum, nannabúbú.
Nú get ég sest niður og borað í nefið yfir euróvison í kveld. Þarf ekki að hugsa neitt fram að hausti, þannig ef ég er eitthvað tóm næst þegar þið hittið mig þá er það ástæðan.
Símon mega babe er búin að skila Ba-ritgerðinni. Æi, ég var að muna að ég get ekki hægt að hugsa strax ég verð að undir búa brúðkaup og vera í hvítum kjóll og svo eiga þessar vinkonur mínar eftir að gera eitthvað miður skemmtilegt við mig, og þá verð ég að drepa þær og þá þarf ég að undir búa jarðarför. Það er svo erfitt að vera ég, hver býður sig fram sem Vanía tvö? Hvað er þetta engin?
Jæja, ég er farin að fella mig undir sofa.
Ef einhver er að leita að mér er ég ekki heima!!!!

"A true friend stabs you in the front."

-Oscar Wilde

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Hvermaður stríðir á heitum degi

Til hamingju Heiðrún mín þú ert loksins komin úr skápnum sem músi músin sem þú ert!

sunnudagur, apríl 01, 2007

Þä gudsmenn ridu roftum


Jæja, nú er Símon ásamt föur og yngri bróður búin að vera í Englandi, nánar til tekið Liverpool á leik poolara og Arsenal, en drengurinn kemur heim í nótt, sótt ölvaður og hland blautur.
Mér hlakkar mjög til, það verður skrautlegt að þrífa skítin af drengnum.
En það er búið að vera voða fínt að vera bara ein heim í róleg heitunum þessa helgi eftir vinnu.
Ég fór reyndar í gær í kólaportið og kringluna með Gyðu og Heiðrúni.
En nú er friðurinn úti og tekið verður til fótanna þegar sá síðhærði mættir á svæðið.

,,Sumir kenna áhyggjum sínum að synda í stað þess að drekkja þeim."
-Mark Twain